02. júní 2008 klukkan 23:16
Fjörið hefur verið flutt á
800 BAR
1000kall inn
Frír bjór til klukkan 23:00
Allir fá stimpil og þar af leiðandi frítt á ballið með
Vítamín
Engin skráning, bara mæta með góða skapið
Mæting kl. 20:30
Árgangur ´82 á staðinn til kl. 23:00
http://www.myspace.com/800bar
Þema kvöldsins: sól og sumar. Skærir litir, sólgleraugu, hattar, sandalar og fleira sumarlegt
Ástæða breytinganna er sú að ekki fékkst næg þáttaka til að halda tilboðinu við Golfskálann, þar af leiðandi var talað við skólafélga okkar hann Árna Steinars og bauð hann okkur uppá þetta frábæra tilboð.
Þeir sem hafa nú þegar borgað fá endurgreitt þann 3.júní.
Vonum að allir þeir sem að voru búnar að skrá sig mæti þrátt fyrir breytingarnar.
Fjölmennum og hvetjum skólafélaga okkar til að mæta 
Nefndin 
Útskriftarárgangur Sólvallaskóla 1998
01. júní 2008 klukkan 15:37
Í dag er seinasti dagurinn til að skrá sig á bekkjarmótið!!!
Þeir sem ekki eru búnir að skrá sig eru hvattir til að drífa í því.
Kv. Nefndin
Útskriftarárgangur Sólvallaskóla 1998
30. maí 2008 klukkan 13:07
Sökum Suðurlandsskjálftans höfum við í nefndinni ákveðið að lengja frestinn til að skrá sig á bekkjamótið til:
1.júní kl.00.00.
Enn eru einhverjir sem ekki vita af hittingnum. Verið dugleg að heyra í fólki og láta þetta berast! Minnum á mailið - argangur82@gmail.com
Með von um að allir séu við góða heilsu,
Nefndin
Útskriftarárgangur Sólvallaskóla 1998
26. maí 2008 klukkan 22:37
Tíminn flýgur áfram og erum við að leggja lokahönd á undirbúningin fyrir bekkjamótið!
Kvöldið byrjar um klukkan 19:00 á léttu nótunum, síðan gæðum við okkur á glæsilegu hlaðborði og rifjum upp gamlar æskuminningar úr gaggó. Stórskemmtilegur trúbador kíkir á okkur og spilar fyrir okkur létta smelli fram að miðnætti.
Eftir svakalegt fjör og mikinn hlátur verður fjörið flutt yfir á BAR-800 þar sem að þeir sem að hafa eitthvað þol eftir munu tjútta fram á morgun 
Skráningu líkur kl:23:59:58
þann 29.maí 2008.
Ekki bíða fram á seinustu stundu til að skrá ykkur 
Sjáumst hress og kát eftir rúma viku 
Nefndin
Útskriftarárgangur Sólvallaskóla 1998
19. maí 2008 klukkan 22:27
Takið eftir!!!!
Nú er allt að verða klárt hjá okkur kjellunum
Dagsetningin er sem fyrr segir 6.júní.
Staðsetning: Golfskáli Selfoss
Þema kvöldsins er: Sól og sumar, Bleikt, grænt, gult
Sólgleraugu hattar og fleira sumarlegt
Skemmtiatriði, trúbador og margt fleira skemmtilegt
Matseðill: Steikarhlaðborð:
Villisveppasúpa með púrtvíni og garðablóðbergi ásamt nýbökuðu brauði
Grillaðar hunangsgljáðar kjúklingabringur, Glóðarsteikt jógúrtmarinerað lambalæri Tandoori og heilsteiktur folaldahryggvöðvi. Soðsósa Marsala.
Kartöflur "big chips". Ferskt grænmeti með vinaigrette.
Tilboðsverð á rauðvínsglasi eða hvítvíns 450pr.glas
Tilboð á stórum bjór 400kr.
Verð á mann: 4000krónur.
Reiknings númer er komið og það er Banki-0325 Hb-13 Reikningsnr.-928
Kt: 280682-2929 og frestur til að leggja inn er til 04. júní 2008.
Skráningu líkur kl:23:59:58 þann 29.maí 2008. (argangur82@gmail.com)
Skráið ykkur sem fyrst!!!!!
óskum eftir metþáttöku og mögnuðu kvöldi
Skál í botn
pungsveitta nefndinn
Útskriftarárgangur Sólvallaskóla 1998
16. maí 2008 klukkan 21:31
Útskriftarárgangur Sólvallaskóla 1998
09. maí 2008 klukkan 12:50
Útskriftarárgangur Sólvallaskóla 1998
30. apríl 2008 klukkan 22:16
Í kvöld sendum við sms á nánast alla í árganginum sem útskrifaðist úr 10 bekk 1998. Einhverjir reyna að fela númerin sín vel og vandlega svo erfitt reynist að hafa upp á þeim en vonandi skilar þetta sér til allra. Við vinnum að því að fá húsnæði, veitingar, skemmtiatriði og festa dagsetningu. Þeir sem fengu sms vinsamlegast kvittið svo við vitum ca hverjir hafa fengið skilaboð og vita af þessu.!!! Látið þetta berast. Vinsamlegast skiljið eftir fullt nafn í athugasemdum svo við getum merkt við í kladdann
hlökkum til að sjá sem flesta og skál í botn og restin í hárið
kveðja nefndin
Útskriftarárgangur Sólvallaskóla 1998
23. apríl 2008 klukkan 22:17
er á fullu þessa dagana að vinna í að finna samastað, skemmtiatriði o.fl.

Ákveðið hefur verið að halda þetta mót í júní og verður dagsetningin ljós á næstu dögum, við lofum! En verið er að ganga frá nokkrum smáatriðum svo hægt sé að festa endanlega dagsetningu. Einnig er nefndin að vinna í því að grafa upp upplýsingar um fólkið í árganginum svo sem flestir fái að vita af þessu öllu saman.
Nefndin er komin vel af stað með að plana þetta allt og við vitum að þetta verður rosa stuð

Við viljum benda fólki á að senda endilega inn gamlar myndir á argangur82@gmail.com svo þessi síða verði ennþá skemmtilegri en hún er nú þegar.
Og endilega verið dugleg að kommenta :)
Kv. Nefndin
Útskriftarárgangur Sólvallaskóla 1998
18. apríl 2008 klukkan 22:52
Nefndin er búin að hittast og vildum við láta vita að það koma inn frekari fréttir um miðja næstu viku.
Kv. Nefndin
Útskriftarárgangur Sólvallaskóla 1998