Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Útskriftarárgangur Sólvallaskóla 1998
  • Stađur: Selfoss

Innskráningar kubbur

Klukkan

Breyting á kvöldinu stóra ...

02. júní 2008 klukkan 23:16
Fjörið hefur verið flutt á

800 BAR

1000kall inn
Frír bjór til klukkan 23:00 
Allir fá stimpil og þar af leiðandi frítt á ballið með

Vítamín


Engin skráning, bara mæta með góða skapið Glottandi 

Mæting kl. 20:30

Árgangur ´82 á staðinn til kl. 23:00

http://www.myspace.com/800bar

Þema kvöldsins: sól og sumar. Skærir litir, sólgleraugu, hattar, sandalar og fleira sumarlegtSvalur

Ástæða breytinganna er sú að ekki fékkst næg þáttaka til að halda tilboðinu við Golfskálann, þar af leiðandi var talað við skólafélga okkar hann Árna Steinars og bauð hann okkur uppá þetta frábæra tilboð.

Þeir sem hafa nú þegar borgað fá endurgreitt þann 3.júní.

Vonum að allir þeir sem að voru búnar að skrá sig mæti þrátt fyrir breytingarnar.

Fjölmennum og hvetjum skólafélaga okkar til að mæta Brosandi

Nefndin Glottandi




Útskriftarárgangur Sólvallaskóla 1998
5 athugasemdir

ATHUGIĐ!!!!

01. júní 2008 klukkan 15:37
Í dag er seinasti dagurinn til að skrá sig á bekkjarmótið!!!
Þeir sem ekki eru búnir að skrá sig eru hvattir til að drífa í því. 

Kv. Nefndin
Útskriftarárgangur Sólvallaskóla 1998
2 athugasemdir

Frestur til skráningar hefur veriđ lengdur.

30. maí 2008 klukkan 13:07


Sökum Suðurlandsskjálftans höfum við í nefndinni ákveðið að lengja frestinn til að skrá sig á bekkjamótið til:

1.júní kl.00.00.

Enn eru einhverjir sem ekki vita af hittingnum. Verið dugleg að heyra í fólki og láta þetta berast! Minnum á mailið - argangur82@gmail.com

Með von um að allir séu við góða heilsu,
Nefndin


Útskriftarárgangur Sólvallaskóla 1998
Engin athugasemd

Rúm vika í bekkjamótiđ ...

26. maí 2008 klukkan 22:37

Tíminn flýgur áfram og erum við að leggja lokahönd á undirbúningin fyrir bekkjamótið!


Kvöldið byrjar um klukkan 19:00 á léttu nótunum, síðan gæðum við okkur á glæsilegu hlaðborði og rifjum upp gamlar æskuminningar úr gaggó. Stórskemmtilegur trúbador kíkir á okkur og spilar fyrir okkur létta smelli fram að miðnætti.

Eftir svakalegt fjör og mikinn hlátur verður fjörið flutt yfir á BAR-800 þar sem að þeir sem að hafa eitthvað þol eftir munu tjútta fram á morgun Glottandi

Skráningu líkur kl:23:59:58

þann
29.maí 2008.

Skráið ykkur með því að senda okkur línu á:
argangur82@gmail.com

Ekki bíða fram á seinustu stundu til að skrá ykkur Hlæjandi




Sjáumst hress og kát eftir rúma viku Hlæjandi

Nefndin

Útskriftarárgangur Sólvallaskóla 1998
2 athugasemdir

Allt ađ smella

19. maí 2008 klukkan 22:27
Takið eftir!!!!
Nú er allt að verða klárt hjá okkur kjellunumSvalur
Dagsetningin er sem fyrr segir 6.júní.
Staðsetning: Golfskáli Selfoss
Þema kvöldsins er: Sól og sumar, Bleikt, grænt, gultBrosandi Sólgleraugu hattar og fleira sumarlegtSvalur
Skemmtiatriði, trúbador og margt fleira skemmtilegtBrosandi
Matseðill:

Steikarhlaðborð:

Villisveppasúpa með púrtvíni og garðablóðbergi ásamt nýbökuðu brauði

Grillaðar hunangsgljáðar kjúklingabringur, Glóðarsteikt jógúrtmarinerað lambalæri Tandoori og heilsteiktur folaldahryggvöðvi. Soðsósa Marsala.

Kartöflur "big chips". Ferskt grænmeti með vinaigrette.
Tilboðsverð á rauðvínsglasi eða hvítvíns 450pr.glas
Tilboð á stórum bjór 400kr.

Verð á mann: 4000krónur.
Reiknings númer er komið og það er Banki-0325 Hb-13 Reikningsnr.-928

Kt: 280682-2929 og frestur til að leggja inn er til 04. júní 2008.

Skráningu líkur kl:23:59:58 þann 29.maí 2008. (argangur82@gmail.com)
Skráið ykkur sem fyrst!!!!!
óskum eftir metþáttöku og mögnuðu kvöldiHlæjandi
Skál í botn
pungsveitta nefndinnHlæjandi


Útskriftarárgangur Sólvallaskóla 1998
5 athugasemdir

6. júní 2008

16. maí 2008 klukkan 21:31
Núna eru aðeins 3 vikur í stóru stundina og er nefndin búin að sitja sveitt að plana kvöldið.
Við vorum að spá í að biðja um aðstoð ykkar við eitt, okkur langar rosalega að fá myndir frá ykkur! Skemmtilegar myndir úr ferðum, bekkjarpartýum, úr tímum í skólanum eða hvaða myndir sem er frá þessum árum! Kíkið því í gömul myndaalbúm og ath hvort þið finnið ekki skemmtilegar myndir. Ef þið hafið ekki aðgang að skanna þá getiði sent eða komið myndunum til einhverrar okkar í nefndinni myndirnar og við reddum þeim yfir á tölvutækt form.

Golfskálinn þarf að vita hver fjöldinn verður viku fyrir, uppá matinn að gera. Það verður því að láta vita með e-mail fyrir 30. maí (argangur82@gmail.com) um hvort þið ætlið að koma. Drífið nú í því að senda e-mail svo þið gleymið því nú ekki Glottandi

Ef þið vitið um einhverja í árganginum sem ekki vita af þessu (eða ef ykkur grunar að viti ekki) þá endilega látið þetta berast. Því fleiri sem koma því skemmtilegra! Hlæjandi

Endilega ef þið hafið hugmyndir fyrir kvöldið látið okkur vita og hjálpið okkur að gera kvöldið sem skemmtilegast Svalur

Verð og greiðslumöguleikar koma inn á síðuna í næstu viku.

Kv. Nefndin
Berglind, Helga Dóra, Gulla, Jóhanna Fr. og Jóhanna Ýr
Útskriftarárgangur Sólvallaskóla 1998
Engin athugasemd

Nýjar fréttir...

09. maí 2008 klukkan 12:50
Þá er komið að því að duglega nefndin flytji ykkur fréttir Svalur

Ákveðið hefur verið að halda árgangsmótið föstudaginn 6.júní og verður það haldið í Golfskála Selfoss og byrjar það kl.19:00 og verður eitthvað frameftir. Glæsilegur matseðill verður í boði og einnig verða stórskemmtileg skemmtiatriði Hlæjandi.

Nefndin er núna að vinna að því að setja saman verð og verða allar nánari upplýsingar um það og mótið komnar inn um miðja næstu viku.

Hvað segið þið? Líst ykkur ekki vel á þetta? Við erum alveg handviss um að þetta verði heljarinnar stuð og hvetjum alla til að mæta svo þetta verði sem skemmtilegast Svalur

Kv. Nefndin
Útskriftarárgangur Sólvallaskóla 1998
21 athugasemd

fréttir frá duglegu nefndinni:)

30. apríl 2008 klukkan 22:16

Í kvöld sendum við sms á nánast alla í árganginum sem útskrifaðist úr 10 bekk 1998. Einhverjir reyna að fela númerin sín vel og vandlega svo erfitt reynist að hafa upp á þeim en vonandi skilar þetta sér til allra. Við vinnum að því að fá húsnæði, veitingar, skemmtiatriði og festa dagsetningu. Þeir sem fengu sms vinsamlegast kvittið svo við vitum ca hverjir hafa fengið skilaboð og vita af þessu.!!! Látið þetta berast. Vinsamlegast skiljið eftir fullt nafn í athugasemdum svo við getum merkt við í kladdannBrosandi

hlökkum til að sjá sem flesta og skál í botn og restin í háriðSvalur
kveðja nefndin

Útskriftarárgangur Sólvallaskóla 1998
37 athugasemdir

Duglega nefndin...

23. apríl 2008 klukkan 22:17
er á fullu þessa dagana að vinna í að finna samastað, skemmtiatriði o.fl. Hlæjandi
Ákveðið hefur verið að halda þetta mót í júní og verður dagsetningin ljós á næstu dögum, við lofum! En verið er að ganga frá nokkrum smáatriðum svo hægt sé að festa endanlega dagsetningu. Einnig er nefndin að vinna í því að grafa upp upplýsingar um fólkið í árganginum svo sem flestir fái að vita af þessu öllu saman.
Nefndin er komin vel af stað með að plana þetta allt og við vitum að þetta verður rosa stuð Svalur

Við viljum benda fólki á að senda endilega inn gamlar myndir á argangur82@gmail.com svo þessi síða verði ennþá skemmtilegri en hún er nú þegar.
Og endilega verið dugleg að kommenta :)

Kv. Nefndin
Útskriftarárgangur Sólvallaskóla 1998
3 athugasemdir

Nefndin hefur hafiđ störf :)

18. apríl 2008 klukkan 22:52
Nefndin er búin að hittast og vildum við láta vita að það koma inn frekari fréttir um miðja næstu viku.

Kv. Nefndin Svalur
Útskriftarárgangur Sólvallaskóla 1998
3 athugasemdir